Heim / Skilmálar Mínar upplýsingar  |  Skoða körfuna  |  Fara á kassa  |  Skilmálar  

Fartölvur
Flakkarar
Hugbúnaður
Íhlutir
Jaðartæki
Kaplar
Kælingar & viftur
Media Center - MCE
Myndavélar
Netbúnaður
Rekstrarvörur
Shuttle XPC
Símar
Skjáir
Tölvukassar
Tölvur
Töskur
Uppfærslutilboð
Veggfestingar
Þjónusta
Ýmislegt


Ný vara Meira...
Taska fyrir Flip ASP2CP1UK
Taska fyrir Flip ASP2CP1UK
2.490.-
Leit
 

Ítarleg leit
Upplýsingar
Afgreiðsla pantana
Skilmálar
Hafa samband
Verkstæði
Um start

Skilmálar

ALMENNT

Start tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum, úreltum eða röngum upplýsingum sem birtar eru á vefnum. Þá eru meðtalin verð,vörulýsingar og tæknilegar upplýsingar. Start áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga. Start áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta póstkröfu-pantanir símleiðis.
Nánar um afgreiðslu pantana hér.

SKIL EÐA SKIPTI Á VÖRUM

Þú hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þú hafir ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Vara er tekin tilbaka á upphaflegu kaupverði.

ÁBYRGÐ

2 ára ábyrgð er á öllum vörum frá og með útgáfudegi reiknings. Ekki er tekin ábyrgð á eðlilegu sliti á búnaði né ef ekki hafi verið farið eftir leiðbeiningu framleiðanda í uppsetningu. Ábyrgð fellur út gildi ef aðrir en starfsmenn Start gera tilraun til viðgerða á búnaði án samþykkis Start eða röng spenna hefur verið sett inn á búnaðinn. Start er ekki ábyrgt fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðra vöru.

EIGNARRÉTTUR

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningsviðskipti afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

HÖFUNDARRÉTTUR OG VÖRUMERKI

Allt efni á vefsvæði start.is, texti, grafík, lógó, hnappaíkon, myndir, hljóðskrár og hugbúnaður er eign Startsíðunnar ehf eða eign birgja Startsíðunnar ehf sem selja vörur sínar á vefsvæði Startsíðunnar ehf og nýtur höfundaréttar og verndar lögum samkvæmt. Gagnagrunnur start.is, val eða niðurröðun á efni í honum nýtur höfundaréttar og er eign Startsíðunnar ehf. Vörumerki Startsíðunnar ehf, "start", er vörumerki sem er skráð hjá Einkaleyfastofunni og eign Startsíðunnar ehf og má ekki nota í tengslum við neinar tölvutengdar vörur eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Startsíðunni ehf.

Skilmálar þessir eru almennir verslunarskilmálar Start.is og tóku gildi þann 1. febrúar 2003.


Áfram
Karfan Meira...
Karfan er tóm

Hvernig panta ég?


Öll réttindi áskilin © 2003 Startsíðan ehf
Powered by osCommerce